Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í þýska liðinu MBC eru í 14. sæti Bundesligunnar um þessar mundir en liðið vann öruggan 80-66 sigur á Oliver Baskets um helgina en Oliver Baskets er í 11. sæti deildarinnar.
Hörður var ekki í byrjunarliðinu að þessu sinni en lék í 17 mínútur og skoraði 8 stig í leiknum. Þá var hann einnig með 3 stoðsendingar og 1 frákast. Hörður hefur s.s. átt betri nýtingu í teignum, aðeins 1 af 7 vildu niður innan við þriggja stiga línuna en 2 af 4 þristum rötuðu niður.
Þann 9. janúar heldur MBC svo á útivöll þar sem liðið mætir Oliver Baskets á nýjan leik.