Snæfell marði nauman sigur gegn Fjölni í Dalhúsum í kvöld, lokatölur 60-67 gestunum í vil. Hildur Björg Kjartansdóttir splæsti í myndarlega tvennu með 22 stig og 11 fráköst hjá Snæfell en í liði Fjölnis var Britney Jones með 36 stig, 4 fráköst og 5 stoðsendingar.
Björn Ingvarsson var vitaskuld mættur í Dalhúsin og setti saman meðfylgjandi myndasafn frá leiknum.