spot_img
HomeFréttirFinnur: Martin getur ekki troðið

Finnur: Martin getur ekki troðið

Finnur Freyr Stefánsson þjálfari kvennaliðs KR var í spjalli í kvöld hjá Gesti Einarssyni frá Hæli í Sportþættinum Mánudagskvöld á Suðurland FM 96,3. Talið barst að Stjörnuleik karla sem fram fer í Garðabæ þann 19. janúar næstkomandi en þá bauð Finnur upp á myndarlega kyndingu í viðtalinu.
 
Finnur sagði þá að hann myndi bjóða KR-ingnum Martin Hermannssyni út að borða ef hann myndi troða í stjörnuleiknum og klikkti svo út með: ,,En ég veit hann getur ekki troðið,” sagði Finnur sem er fyrrum þjálfari Martins úr yngri flokkum KR.
 
Þá er bara að bíða og sjá hvað verður og Finnur að vonast til að Domino´s lið Sverris Þórs Sverrissonar drattist til að spila almennilega lið vörn gegn Icleandair liðinu svo seðlaveski Finns þurfi ekki að bíða fjártjóns.
  
Fréttir
- Auglýsing -