Eva Rós Guðmundsdóttir og Soffía Rún Skúladóttir spiluðu sinn fyrsta leik fyrir Njarðvík í kvöld þegar liðið burstaði Grindavík í Ljónagryfjunni. Soffía hafði fyrir áramót verið með Keflavík en ekki fengið mörg tækifæri þar og er því komin yfir til Njarðvíkur. Eva Rós lagði skóna á hilluna sökum anna í námi fyrir rúmlega ári síðan en hefur líkast til eitthvað kítlað í tærnar að komast aftur í bolta. Vissulega fínn liðsstyrkur fyrir Njarðvíkurstúlkur sem slást í neðri hluta deildarinnar.