Friðrik Erlendur Stefánsson leikmaður Njarðvíkur hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann eftir að honum var vísað af velli í leik gegn Keflavík í Poweradebikarkeppni karla. Friðrik verður því ekki með Njarðvík í kvöld þegar Skallagrímur mætir í Ljónagryfjuna.
Friðrik missir svo af útileik gegn ÍR í Hertz Hellinum þann 31. janúar næstkomandi.