spot_img
HomeFréttirÍslandsbanki styrkir yngriflokka UMFN

Íslandsbanki styrkir yngriflokka UMFN

 
 
Nú skömmu eftir áramót skrifuðu Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur og Íslandsbanki undir samstarfssamning þess efnis að Íslansbanki myndi styrkja yngri flokka starf félagsins, sem einn af aðalstyrktaraðilum . Friðrik Ragnarsson og Sighvatur Gunnarsson undirrituðu samninginn á dögunum og eru Njarðvíkingar hæstánægðir að fá svo sterkan styrktaraðila að yngri flokka starfinu.
 
  
Njarðvíkingar afhentu einnig við sama tilefni pening sem safnaðist í ágóðaleik sem leikinnn var 21.des. Jakob Sigurðsson tók við peningagjöfinni af Davíð Páli Viðarsyni stjórnarmanni körfuknattleiksdeildarinnar fyrir hönd líknarsjóðs Njarðvíkurkirkjna.
 
Fréttir
- Auglýsing -