spot_img
HomeFréttirPáll Axel sækir hart að Guðjóni

Páll Axel sækir hart að Guðjóni

Páll Axel Vilbergsson sækir nú hart að Guðjóni Skúlasyni á topp tíu listanum yfir flestar þriggja stiga körfur skoraðar í deildarkeppni úrvalsdeildar. Páli Axeli vantar aðeins 46 þriggja stiga körfur til að jafna Guðjón Skúlason að metum en Guðjón skoraði 965 þrista í deildarkeppninni á sínum ferli.
 
Lengi vel var enginn sem komst nærri Guðjóni á þessum lista því þá var Teitur Örlygsson í 2. sæti með 742 þriggja stiga körfur. Reynsluboltinn Páll Axel hefur klifið þarna upp hægt og bítandi og ekki ósennilegt að Guðjón taki fram skóna á ný til að varðveita metið sitt!
 
Í fjórða sæti í dag og aðeins annar leikmaðurinn sem enn er að spila á listunum er Keflvíkingurinn Magnús Þór Gunnarsson en hann hefur gert 683 þrista í deildarkeppninni.
 
Topp tíu listinn yfir flestar þriggja stiga körfur skoraðar í íslensku úrvalsdeildinni í körfubolta (aðeins um deilarleiki að ræða, ekki úrslitakeppni):
 
1. Guðjón Skúlason – 965
2. Páll Axel Vilbergsson – 919
3. Teitur Örlygsson – 742
4. Magnús Þór Gunnarsson – 683
5. Kristinn Geir Friðriksson – 673
6. Valur Snjólfur Ingimundarson – 593
7. Eiríkur Sverrir Önundarson – 580
8. Gunnar Einarsson – 572
9. Brenton Joe Birmingham – 534
10. Pálmar Sigurðsson 484
  
Mynd/ Davíð Þór
 
Fréttir
- Auglýsing -