ÍR-ingar gætu þurft að stara framan í óskemmtileg tíðindi þar sem Hreggviður Magnússon er meiddur í hné. Jón Arnar Ingvarsson þjálfari ÍR sagði við Karfan.is í dag að hnémeiðsli Hreggviðs hefðu komið upp eftir Snæfellsleikinn í síðustu viku.
,,Hann á að reyna aftur að hreyfa sig eftir viku. Ef það gengur ekki þarf hann aðgerð og verður þá trúlega ekki meira með í vetur,” sagði Jón Arnar við Karfan.is.
Ekki þarf að fjölyrða þá um blóðtökuna sem ÍR yrði fyrir en sem stendur er liðið í fallsæti í Domino´s deild karla.