Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ hefur nú tekið fyrir mál Snæfells gegn Val og dæmt Snæfell 20-0 sigur. Liðin mættust í ársbyrjun í Domino´s deild kvenna þar sem Valdur telfdi fram Jaleesa Butler.
Butler lék í leiknum sem Valur vann í Stykkishólmi en þegar leikurinn fór fram var hún ekki komin með leikheimild. Hér má lesa dóminn í heild sinni.
Þá fékk Andrés Kristleifsson, leikmaður með Hetti í 1. deild karla, áminningu vegna háttsemi sinnar í leik gegn Þór Akureyri þann 18. janúar síðastliðinn.
www.kki.is
Mynd/ Sumarliði: Frá viðureign Snæfells og Vals sem Hólmarar kærðu.