Arnar Freyr Jónsson hefur sagt skilið við BC Aarhus í dönsku úrvalsdeildinni. Hann verður ekki fyrsti ,,Arnar-inn” til að yfirgefa félagið en það gerði Arnar Guðjónsson fyrr á þessari leiktíð þegar hann lét af störfum sem þjálfari liðsins.
Karfan.is náði örstuttu tali af Arnari Frey sem sagðist ekki á höttunum eftir öðru liði í Danmörku þessa stundina:
,,Ég var bara að segja skilið við þetta bull sem er í gangi hérna,” sagði Arnar og fór ekkert nánar út í það sérstaklega hvað hann væri ósáttur við.
BC Arhus situr í áttunda og þriðja neðsta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar og fékk skell á heimavelli í síðustu umferð þegar Horsens IC kom í heimsókn.