Þessi fimmtudagur er í rólegri kantinum en aðeins einn leikur er á dagskránni í kvöld og er það bikarleikur í unglingaflokki karla sem hefst kl. 19:15 í Ljónagryfjunni. Þá eigast við Njarðvík og Stjarnan.
Leikurinn er í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar í unglingaflokki en samkvæmt stöðunni á Íslandsmótinu er unglingaflokkur Njarðvíkur ósigraður í A-riðli en Stjarnan í 2. sæti í B-riðli með fjóra sigra og einn tapleik (birt með fyrirvara um rétta stöðu, upplýsingar úr Live Stat kerfi KKÍ).