Piltarnir úr unglingaflokki Njarðvík sýndu litla gestrisni þegar Stjörnumenn komu í heimsókn í gærkvöldi í bikarkeppninni. Skemmst frá því að segja voru Stjörnumenn teknir í kennslustund og sigraði Njarðvík 118: 80. Þar fór mikin Elvar Már Friðriksson sem endaði leikinn með 43 stig eftir að hafa verið komin með 32 stig í fyrri hálfleik. Agnar Mar Gunnarsson var á svæðinu með “Nikon-inn” sinn og splæsti í eitt myndasafn.