Fyrrum frákasta maskína þeirra Keflvíkinga Jón Norðdal Hafsteinsson eða Jón-Machine mun mæta í Höllina á laugardag og styðja sitt lið. Hann sendi okkur sína spá fyrir leikina.
Grindavík-Stjarnan verður hörkuleikur. Bæði lið eru mjög vel mönnuð. Hafa bæði mikla breidd. Stjarnan er búin að tapa síðustu leikum í deildinni, meðan Grindavík hefur verið að vinna sína leiki. Það gæti virkað sem eldsneyti fyrir Stjörnuna, farið að hungra eftir sigri. En þetta er allt annar leikur í svona bikar og bæði lið mæta dýrvitlaus til leiks. Marvin og Jovan verða að spila vel fyrir Stjörnuna og Stjarnan verður að halda útlendingunum í Grindavík í skefjum. Hjá Grindavík verða Lalli og Siggi þ verða góðir og Grindavík veður að stopa Marvin og Shouse. Þetta verður hörkuleikur, Tippa að Sverrir nái að kreista fram 4. stiga sigur fyrir Grindavík. Svo fer hann að halda með Arsenal. Lalli verður maður leiksins.
Keflavík- Valur. Valskonur eru búnar að fá nýja útlending sem við þekkum vel Butler. Hún kemur með mikið inn í liðið. Síðast þegar þessi lið spiluð gegn hvor öðru þá rúllaði Valur yfir Keflavík í Keflavík og það er eitthvað sem Keflavík gleymir ekki. Keflavík verður að stoppa Kristrúni og Butler. Þetta verður hörkuleikur sem gaman verður að horfa á. Ungu stelpurnar eiga eftir að spila stóra rullu í þessum leik undir stjórn Pálinu og Birnu. Tippa á 7 stiga sigur fyrir Keflavík. Sara Rún Hinriksdóttir verður maður leiksins.