Ólafur Ægisson nýbakaður faðir og þrista sérfræðingur er á mála hjá ÍR þessa dagana er næstur í röðinni. Við skelltum spádómsgleraugum á kappann út úr því kom þetta.
Keflavík- Valur
Held að þetta verði hörkuleikur miðað við leik liðanna í deildinni um daginn. Ég hef samt trú á að Keflavík eigi eftir að hafa þetta á endanum, þær hafa reynslumiklar stelpur sem kunna þetta allt saman. Ég veit ekki alveg hvaða leikmaður muni koma á óvart í þessum leik en tel að Pálína verði maður leiksins.
Grindavík – Stjarnan
Hrikalega erfitt að spá fyrir þennan leik. Grindvíkingar eru á mikilli siglingu um þessar mundir á meða stjarnan hefur átt í vandræðum og þess vegna held ég að þeir séu líklegri. Það kæmi ekki á óvart ef að þessi leikur færi í framlengingu. Hvaða leikmenn eiga eftir að koma á óvart. Oddur Kristjáns vona ég.Aron Broussard mun svo að lokum verða maður leiksins. Broussard og Shouse eru lykilmenn í þessum liðum og ef það er hægt að halda þeim niðri þá áttu góða möguleika. Annars held ég að báðir leikir ráðist á vörn og fráköstum eins og svo oft áður. vona bara að við fáum hraða og spennandi leiki.