Sigrún Björg Ólafsdóttir og Chattanooga Mocs máttu þola tap fyrir Furman Paladins í gærkvöldi í bandaríska háskólaboltanum, 64-43.
Eftir leikinn er Chattanooga í 5. sæti Southern deildarinnar með fimm sigra og átta töp það sem af er tímabili.
Á 30 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sigrún Björg 7 stigum, 4 fráköstum, stoðsendingu og stolnum bolta.
Næsti leikur Sigrúnar og Chattanooga verður lokaleikur þeirra í deild þetta tímabilið, en hann er nú í kvöld gegn Wofford Terriers.