Thelma Dís Ágústsdóttir og Ball State Cardinals lögðu Western Michigan Broncos í gær í bandaríska háskólaboltanum, 64-56.
Eftir leikinn er Ball State í 4. sæti MAC deildarinnar með níu sigra og sjö töp það sem af er tímabili.
Á 36 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Thelma Dís 6 stigum, 8 fráköstum og 3 stoðsendingum.
Næsti leikur Thelmu og Ball State er í dag laugardag 26. febrúar gegn Illinois Huskies.