spot_img
HomeFréttirKeflvíkingar blása í herlúðra

Keflvíkingar blása í herlúðra

 
 Keflavíkurstúlkur taka á móti Val í þriðja leik liðanna í 4-liða úrslitum Domino´s deildar kvenna í Toyotahöllinni á morgun þriðjudag 9. apríl.  Keflvíkingar ætla að spíta í lófana að þessu sinni og verða grillin sett í gang um kl. 17.30 og brakandi ferskir borgarar verða á boðstólum gegn vægu gjaldi ásamt meðlæti fyrir leik
 
 Stjórn Keflavíkur hefur skorað sérstaklega á þá stuðningsmenn sem hjálpuðu minnibolta stúlkna og 7. flokk karla lyfta íslandsmeistartitlum um helgina að mæta til leiks en þar var víst ein mesta stemmning sem sést hefur í háa herrans tíð í Toyotahöllinni. Svo mikilvægur er stuðningurinn að aðstoðarþjálfarar kvennaliðsins, þær Erla Reynisdóttir og Marín Rós Karlsdóttir, hafa heitið því að komi 500 manns í húsið muni þær syngja Adele slagarann “Someone like you” til handa stuðningsmönnum í hálfleik. Sjón verður því klárlega sögu ríkari!
 
 
Fréttir
- Auglýsing -