Sigurður Ingimundarson og Finnur Stefánsson voru teknir á tal eftir leik kvöldsins á milli Keflavíkur og KR þar sem að Keflavík gersamlega kafsilgdi lið KR með 21 stigs sigri. Sigurður var gríðarlega ánægður með varnarleik sinna kvenna á meðan Finnur var að sjálfsögðu ekki sáttur með frammistöðu sinna kvenna en sagði þó að liðið væri enn í ágætis málum og að þær yrðu bara að klára næsta leik og vinna svo einn leik í Keflavík eins og vitað var frá upphafi.