Þóra Kristín Jónsdóttir, Ástrós Lena Ægisdóttir og AKS Falcon lögðu BK Amager í dag í dönsku úrvalsdeildinni, 56-46.
Eftir leikinn sem áður eru Falcon í efsta sæti deildarinnar, með aðeins eitt tap það sem af er tímabili.
Á rúmum 20 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Þóra Kristín 5 stigum, 2 fráköstum, 3 stoðsendingum og stolnum bolta. Ástrós Lena lék tæpar 19 mínútur og var með 6 stig, 2 fráköst, 4 stoðsendingar og stolinn bolta.
Næsti leikur Falcon er þann 23. febrúar gegn Åbyhøj.