Sigrún Björg Ólafsdóttir og Chattanooga Mocs lögðu Western Carolina Catamounts í gær í bandaríska háskólaboltanum, 63-47.
Eftir leikinn er Chattanooga í 5. sæti Southern deildarinnar með fimm deildarsigra og sjö töp það sem af er tímabili.
Á 26 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sigrún Björg 5 stigum, 2 fráköstum, 2 stoðsendingum og stolnum bolta.
Næsti leikur Sigrúnar og Chattanooga er þann 25. febrúar gegn Furman Paladins.