Sara Rún Hinriksdóttir og Phoenix Constanta máttu þola 5 stiga tap í dag fyrir Satu Mare í rúmesnku úrvalsdeildinni, 71-66.
Eftir leikinn er Phoenix í 5. sæti deildarinnar með 9 sigra og 9 töp það sem af er tímabili.
Á 26 mínútum spiluðum skilaði Sara Rún 7 stigum, 4 fráköstum, 3 stoðsendingum og 3 stolnum boltum.
Næsti leikur Söru og Phoenix er þann 12. mars gegn Alexandria.