A-landslið karla er þessa dagana að undirbúa sig fyrir undankeppni Evrópukeppninnar sem hefst í byrjun ágúst en leikið er um eitt sæti á Eurobasket 2015 í Ukraínu. Ísland er í riðli með Rúmeníu og Búlgaríu.
Áður en kemur að Evrópuleikjunum, sem verða kynntir sérstaklega síðar, mun liðið leika 5 æfingaleiki.
Æfingamót í Kína 16. – 22. júlí:
Liðið heldur til Kína þriðjudaginn 16. júlí til að taka þátt í 4-landa móti en auk heimamanna og okkar verða lið Makedóníu og Svartfjallalands sem eru að undirbúa sig fyrir lokakeppni Evrópukeppninnar sem fram fer í Slóveníu í september. Ljóst er að um að alvöru æfingaleiki verður að ræða.
Æfingaleikir við Dani 25. og 26. júlí:
25.07. Ásgarður
17:00 Ísland – Danmörk U22 ára lið þjóðanna
19:15 Ísland – Danmörk A-landslið þjóðanna
26.07. Keflavík
17:00 Ísland – Danmörk U22 ára lið þjóðanna
19:15 Ísland – Danmörk A-landslið þjóðanna
Hópurinn sem heldur utan til Kína á þriðjudaginn er skipaður eftirtöldum aðilum:
4 Brynjar Þór Björnsson · KR
5 Haukur Helgi Pálsson · La Bruixa d’Or (áður Manresa)
6 Jakob Örn Sigurðarson · Sundsvall Dragons
7 Jóhann Árni Ólafsson · Grindavík
8 Hlynur Bæringsson · Sundsvall Dragons ?10 Martin Hermannsson · KR
11 Axel Kárason · Værlose
12 Ragnar Nathanaelsson · Hamar
13 Hörður Axel Vilhjálmsson · Free Agent ?14 Logi Gunnarsson · Free Agent ?15 Pavel Ermolinskij · Free Agent
Peter Ökvist · Þjálfari
Pétur Már Sigurðsson · Aðstoðarþjálfari
Arnar Guðjónsson · Aðstoðarþjálfari
Jóhannes Marteinsson · Sjúkraþjálfari
Hannes S. Jónsson · Fararstjóri
Friðrik I. Rúnarsson · Fararstjóri ??Í morgun kom í ljós að Jón Arnór Stefánsson þarf að hvíla í 10 daga en hann á við smávægileg meiðsl að stríða. Hann verður klár í slaginn fyrir leikina gegn Dönum og Evrópuleikina. Því miður var ekki hægt að fá áritun til Kína fyrir leikmann í hans stað með svo stuttum fyrirvara svo það fara 11 leikmenn í þessa ferð.
Darri Hilmarsson, Stefán Karel Torfason og Þorgrímur Kári Emilsson eru enn í æfingahópnum og munu vera með liðinu eftir að það kemur heim frá Kína.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá KKÍ