Nate Robinson mun koma til með að spila með Denver Nuggets á næsta tímabili. Kappinn samdi við Nuggets til tveggja ára eftir að hafa átt skínandi gott tímabil með Chicago. Robinson var aðalega fengin til Chicago til að vera varaskeifa Derrick Rose en eftir að Rose meiddist fékk hann stærra hlutverk sem að hann vann nokkuð vel úr. Þessi stutti leikmaður setti 13 stig og gaf um 5 stoðsendingar í þeim 82 leikjum sem hann spilaði fyrir Bulls á síðasta tímabili og jók skor sitt upp í 16 stig í úrslitakeppninni.
Búast má við að Robinson sem er 29 ára gamall muni koma til með að vera varaskeifa Ty Lawson hjá Nuggets. Þessi vanmetni leikmaður hefur á ferli sínum spilað með Chicago, Boston, Golden State, Oklahoma City og New York á þeim 8 árum sem hann hefur verið í deildinni.