Lele Hardy fyrrum leikmaður UMFN hefur nú skipt um starfsvettvang og mun fara með sinn leik til Hafnarfjarðar nánar tiltekið á Ásvelli þar sem Haukar hafa náð samningum við þennan gríðarlega sterka leikmann. Það þarf svo sem ekkert að fjölyrða hversu mikill styrkur liggur í Hardy, harð duglegur leikmaður sem gefur allt til þess að vinna leiki. Í samtali við Karfan.is í dag sagðist Hardy þó hafa verið með nokkur tilboð. “Það voru lið frá Svíþjóð og Finnlandi sem buðu mér samning og einnig var áhugi frá Spáni og Ítalíu. “
En hversvegna Haukar?
Haukar hafa alltaf verið með nokkuð sterkt lið þau ár sem ég hef spilað hérna á Íslandi þannig að mér fannst það henta mér ágætlega. Það á hinsvegar eftir að verða erfitt að spila gegn “The mean green”. Ég á margar gríðarlega góðar minningar úr Njarðvíkinni og ég dýrka klúbbinn. En ég þarf að venjast núna að spila í rauðu og segja áfram Haukar.” sagði Hardy í stuttu viðtali við Karfan.is í dag.