Lið Tindastóls hefur fengið til sín liðsstyrk fyrir komandi átök í 1. deildinni á næsta tímabili. Antoine Proctor kemur úr vestrinu til þeirra Skagfirðinga og mun leika með þeim á komandi tímabili.
Antonie er fæddur á því herrans ári 1987 og er hann 191 sm á hæð, fjölhæfur bakvörður. Hann kemur úr annaradeildarskóla Montana St. Billings og er þar með 19 stig skoruð í leik að meðatali á síðasta ári sínu í háskóla.
Hér er hægt að sjá nokkra af hápunktum Proctor á síðasta ári.