Fyrirsögnin hljómar vissulega líkt og slúður sem birtist á fotbolti.net en þrátt fyrir það þá gæti þetta orðið að veruleika. Líkurnar eru kannski ekki miklar en á morgun mun Nash fá að reyna fyrir sér og sýna forráðamönnum Inter Milan hæfni sína á fótboltavellinum. Inter eru mættir til Bandaríkjanna til að spila í Guinnes International Cup ásamt nokkrum öðrum liðum frá Evrópu.
Liðið æfir í New Jersey þessa dagana og hafa þeir samþykkt að leyfa Nash að taka þátt í einni æfingu. “Þetta er draumur að verða að veruleika að fá að prófa sig í fótboltanum fyrir ekki minna liði en Inter Milans sem er einn stærsti klúbburinn í heimi. Mér líður svolítið eins og smá strák í fyrstu æfingunni.” sagði Nash
Nash spilaði mikið fótbolta í æsku. ”Þetta verður smá stress að æfa með þessum köllum sem maður hefur horft á alla tíð.” bætti Nash við.