Í vikunni gengu Ísfirðingar frá samningum við 5 leikmenn. Þeir Leó Sigurðsson, Jón Hrafn Baldvinsson, Óskar Kristjánsson, Jón Kristinn Sævarsson, Gautur Arnar og Hákon Halldórsson eru þeir leikmenn sem settu pennan á blað. Að sjálfsögðu glimmrandi fréttir fyrir þá Ísfirðinga en eins og áður hafði verið greint frá mun Birgir Örn Birgisson þjálfa liðið og Jason Anthony Smith mun koma til með að leika með liðinu.
Á myndinni má sjá Jón Hrafn með Sævari formanni og Birgi þjálfara.