Jón Arnór Stefánsson setti niður 32 stig og tók 7 fráköst í leiknum gegn Búlgaríu í kvöld sem tapaðist á grátlegan hátt. Jón Arnór lýsir fyrir okkur síðustu sókn leiksins þar sem hann segir að varnarmaður Búlgara hafi byrjað að brjóta á sér við miðlínu og allt þar til síðasta skot hans fór í loftið. Haukur Helgi Pálsson vildi nú eitthvað taka þetta tap á sig en þrátt fyrir allt sóknarleikur hans hafi ekki verið til staðar í kvöld þá stóð hann fastur fyrir varnarlega og stóð sig með prýði. Hægt er að sjá viðtöl við þá kappa hér að neðan.