Jón Axel Guðmundsson og Crailsheim Merlins lögðu Giessen í kvöld í þýsku úrvalsdeildinni, 87-81.
Eftir leikinn eru Crailsheim í 6. sæti deildarinnar með tólf sigra og sjö töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 13 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Jón Axel 8 stigum, fákasti, stoðsendingu og 2 stolnum boltum.
Næsti leikur Jóns og Crailsheim er þann 19. febrúar gegn Braunschweig.