Jón Axel Guðmundsson og Crailsheim Merlins máttu þola tap í kvöld fyrir Alba Berlin í þýsku úrvalsdeildinni, 106-74.
Eftir leikinn eru Crailsheim í 7. sæti deildarinnar með ellefu sigra og sex töp það sem af er tímabili.
Á 21 mínútu spilaðri í leiknum skilaði Jón Axel 11 stigum, 2 fráköstum og stoðsendingu.
Næsti leikur Jóns og Crailsheim í deildinni er þann 15. febrúar gegn Giessen.