Birna Benónýsdóttir og Binghamton Bearcats máttu þola þriggja stiga tap í gærkvöldi fyrir New Hampshire Wildcats í bandaríska háskólaboltanum, 51-54.
Eftir leikinn er Binghamton í 10. sæti American East deildarinnar með einn deildarsigur og tíu töp það sem af er tímabili.
Á 28 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Birna 23 stigum, frákasti, stoðsendingu og stolnum bolta
Næsti leikur Birnu og Binghamton er þann 14. febrúar gegn UMass Lowell River Hawks.