spot_img
HomeFréttirRagnheiður og Eckerd Tritons höfðu betur gegn Palm Beach

Ragnheiður og Eckerd Tritons höfðu betur gegn Palm Beach

Ragnheiður Björk Einarsdóttir og Eckerd Tritons lögðu Palm Beach Atlantic í gær í bandaríska háskólaboltanum, 60-39.

Það sem af er tímabili hafa Eckerd unnið fimmtán leiki og tapað aðeins tveimur.

Á 20 mínútum spiluðum skilaði Ragnheiður tveimur stigum, fimm fráköstum, tveimur stoðsendingum, stolnum bolta og vörðu skoti.

Næsti leikur Ragnheiðar og Eckerd er komandi miðvikudag 9. febrúar gegn Rollins.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -