Ægir Þór Steinarsson og Acunsa GBC máttu þola tap í kvöld fyrir Caceres í Leb Oro deildinni á Spáni, 68-67.
Eftir leikinn er Acunsa í 7.-8. sæti deildarinnar með 9 sigra og 7 töp það sem af er tímabili líkt og Leyma Coruna
Á tæpum 20 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Ægir Þór 9 stigum, 5 fráköstum, 3 stoðsendingum og stolnum bolta.
Næsti leikur Ægis og Acunsa er þann 6. febrúar gegn Real Valladolid.