Nú þegar glittir í bikarhelgi er ekki seinna en vænna en að skella í spádóma og við hefjum leik á Tómasi Þór Þórðarsyni hinum mikla blaðamanni hjá 365 miðlum. Hér fer spádómur Tómasar fyrir helgina.
Grindavík – ÍR 86-89
Það er eitthvað við ÍR-liðið þessa dagana. Fimm sigrar í síðustu sjö og Moore-áhrifin í fullu svingi. Grindavík er sigurstranglegra en þetta er bikarinn. Spurðu bara KR-inga hvað gerðist 2009. Við fáum almennilegt cupset í æsispennandi leik. Sveinbjörn Claessen á þetta líka svo skilið. Hann fór líka á Hereford um síðustu helgi í góðum félagsskap og kemur því bæði endurnærður og vel nærður til leiks. Menn ekki nærast – menn ekki lifa.
Snæfell – Haukar 65-60
Það hefur verið fínt tempó í síðustu tveimur leikjum liðanna og ágætlega mikið skorað. En nú spilar bikarstress inn í og því mun leikurinn líkjast þeim sem þau spiluðu í október. Sterkari varnir og minna skor. Snæfell með Queen Hildi Sigurðar, sem verður þremur fráköstum frá þrennu, vinnur þetta nokuð örugglega á endanum.
Tengt efni: