Elvar Már Friðriksson og Antwerp Giants máttu þola tap í kvöld fyrir toppliði Filou Oostende í BNXT deildinni í Belgíu, 111-91.
Eftir leikinn eru Giants í 3. sæti deildarinnar með 10 sigra og 5 töp það sem af er tímabili.
Á 28 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Elvar fjórum stigum, frákasti og fimm stoðsendingum.
Næsti leikur Elvars og Giants í deildinni er þann 12. febrúar gegn Belfius Mons.