Íslandsmeistarar Þórs lögðu Stjörnuna í kvöld í Subway deild karla, 88-75. Eftir leikinn er Þór í 3. sæti deildarinnar með 18 stig á meðan að Stjarnan er í 6. sætinu með 14 stig.
Karfan spjallaði við Hlyn Bæringsson leikmann Stjörnunnar eftir leik í Þorlákshöfn. Hlynur átti ágætisleik þrátt fyrir tapið, skilaði 6 stigum, 9 fráköstum og 3 stoðsendingum.