Breiðablik lagði KR í kvöld í Smáranum í Subway deild karla, 135-87. Eftir leikinn eru liðin jöfn að stigum í 8.-10. sæti deildarinnar með 10 stig.
Karfan spjallaði viðEverage Lee Richardson leikmann Breiðabliks eftir leik í Smáranum. Everage var manna bestur í leik kvöldsins, skilaði 26 stigum, 10 fráköstum og 5 stoðsendingum á tæpum 27 mínútum spiluðum.