spot_img
HomeFréttirLeifur FIBA dómari á ný

Leifur FIBA dómari á ný

Leifur S. Garðarsson hefur tekið upp þráðinn að nýju og er orðinn FIBA dómari. www.kki.is greinir frá. Á heimasíðu KKÍ segir:
 
 
Leifur hélt til Mannheim í Þýskalandi um páskana þar sem hann sat námskeið og þreytti próf og eins og fyrr segir barst niðurstaðan í dag. Leifur stóðst prófin og því eiga Íslendingar tvo virka FIBA dómara nú sem er mikilvægt þegar verið er að fjölga landsliðsverkefnum.
 
Leifur tók upphaflega prófið á Ítalíu 1993 en lagði alþjóðaflautuna á hilluna 2004 þegar hann tók sér frí frá dómgæslu.
  
Fréttir
- Auglýsing -