spot_img
HomeFréttirÍvar og Margrét tilkynna 16 manna hóp A-landsliðsins

Ívar og Margrét tilkynna 16 manna hóp A-landsliðsins

Ívar Ásgrímsson og Margrét Sturlaugsdóttir, þjálfarar A-landsliðs kvenna, hafa valið 16 leikmenn til áframhaldandi æfinga en æft verður að nýju í byrjun júní. Þá verður endanlegt 12 manna lið valið. www.kki.is greinir frá.
 
 
Um helgina æfðu 25 leikmenn en upprunalega voru 26 valdar í æfingahóp. Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir og Eva Margrét Kristjánsdóttir Snæfelli og Íris Sverrisdóttir, Haukum, gáfu ekki kost á sér í liðið og inn í æfingahópinni komu Jóhanna Björk Sveinsdóttir, Haukum, og Guðlaug Björt Júlíusdóttir, Njarðvík.
 
Úr upprunalega æfingahópnum lá fyrir að tveir leikmenn gætu ekki tekið þátt í leikjum A-landsliðsins en þær Sara Rún Hinriksdóttir og Sandra Lind Þrastardóttir, báðar frá Keflavík, munu taka þátt í keppni U18-ára landsliðsins í sumar sem keppir á sama tíma og A-landsliðið.
 
16 manna æfingahópurinn eftir helgina er skipaður eftirtöldum leikmönnum: (landsleikir fyrir aftan)
 
Bryndís Guðmundsdóttir · Keflavík 24 leikir
Guðbjörg Sverrisdóttir · Valur 0
Gunnhildur Gunnarsdóttir · Haukar 8
Helena Sverrisdóttir · DVTK Miskolc 46
Helga Hjördís Björgvinsdóttir · Snæfell 0
Hildur Björg Kjartansdóttir · Snæfell 4
Hildur Sigurðardóttir · Snæfell 74
Ingibjörg Jakobsdóttir · Grindavík 12
Jóhanna Björk Sveinsdóttir · Haukar 2
Kristrún Sigurjónsdóttir · Valur 29
Margrét Rósa Hálfdanardóttir · Haukar 0
María Ben Erlingsdóttir · Grindavík 38
Marín Laufey Davíðsdóttir · Hamar 0
Pálína Gunnlaugsdóttir · Grindavík 23
Ragna Margrét Brynjarsdóttir · Valur 17
Sigrún Sjöfn Ámundardóttir · KR 24
 
Mynd/ Hildur Sigurðardóttir er landsleikjahæsti leikmaðurinn í 16 manna hópi Ívars og Margrétar með 74 landsleiki á bakinu.
  
Fréttir
- Auglýsing -