Hinar geysivinsælu æfingabúðir Ágústs Björgvinssonar meistaraflokksþjálfara karla og kvenna hjá Val, fara fram í Vodafonehöllinni Hlíðarenda dagana 10. – 13. júní næstkomandi. Búðirnar eru hugsaðar fyrir áhugasama körfuboltastráka og stelpur á aldrinum 12 til 18 ára.
Æfingabúðirnar hafa verið haldnar frá árinu 2001 og eru því 13 ára í ár. Á þessum 13 árum hafa yfir eittþúsund leikmenn sótt búðirnar. Metþátttaka var júní 2008 þegar rúmlega 140 leikmenn sóttu búðirnar sem voru haldnar í DHL-höll KR-inga.
Vodafonehöllin er eitt glæsilegasta íþróttahús landsins og aðstaðan eins og best verður á kosið, en alls eru 22 körfur í húsinu og því möguleiki á að spila á 6 völlum í einu.
Ágúst hefur mikla reynslu af Körfuboltabúðum sem þessum en meðal búða sem hann hefur þjálfað eru í Duke University og Five Star Basketball Camp í Bandaríkjunum. Undanfarin ár hafa margir af færustu þjálfurum landsins þjálfað í búðunum og verður engin undantekning á því í ár.
þjálfarar verða kynntir til sögunnar þegar nær dregur.
Þeir krakkar sem taka þátt fá tækifæri til þess að njóta handleiðslu mjög hæfra þjálfara sem munu aðstoða krakkana þessa fimm daga sem búðirnar fara fram. Körfuboltabúðirnar eru á milli kl 17.00 og 20.30 frá þriðjudeginum 10. júní til föstudags 13. júní og verðið er einungis 6.000 krónur. Frá klukkan 16.00 til 17.00 gefst leikmönnum færi á að hitta þjálfara og vinna í einstaklingsatriðum.
Körfuboltabúðir Ágústs Björgvinssonar 2014:
Frá 10. Júní til 13. Júní 17.00-20.30
12 til 18 ára stelpur og strákar
Verð 6.000 krónur
Skráning og upplýsingar á [email protected]