spot_img
HomeFréttirBein textalýsing: Ísland- Svíþjóð U16 karla

Bein textalýsing: Ísland- Svíþjóð U16 karla

 Hérna fylgir bein textalýsing frá fyrsta leik Íslands á norðurlandamótinu í dag.  Það er U16 lið karla sem ríður á vaðið og mæta Svíum.  Liðið hefur unnið tvo leiki og tapað einum og standa sem er í öðru sæti ásamt Dönum.  Aðeins Finnar standa betur með þrjá sigurleiki.  Svíar hafa hins vegar ekki unnið leik í keppninni í flokki u16 karla.  
 
 
 
 
 
 
Stigahæstur í liði Íslands í dag var Þórir Guðmundur Þorbjarnarson með 30 stig og 9 fráköst en næstu menn voru Árni Elmar með 12 stig og Ingvi Þór Guðmundsson með 10 stig.  
 
 
 
Fjórði leikhluti
 
– íslenskur sigur staðreynd, 82-66. 
 
 - Svíar virtust ætla að nýta pressuna til þess að minnka muninn og náðu að stela boltanum einu sinni og skora.  Það dugði þó skammt til því Ísland leysti pressuna auðveldlega í næstu tilraun og Árni Elmar skellti þrist á Svían, 82-66. 
 
– Svíar taka leikhlé þegar Ísland hefur bætt í forskotið og 1.47 eftir af leiknum, 75-61.  Íslenska liðið virðist ætla að sigla þessu heim 
 
– Þrjár mínútur eftir og Ísland með 12 stiga forskot, ef þeir vinna í dag standa þeir vel að vígi um að taka annað sætið í keppninni.  
 
– Góður kafli hjá Íslenska liðinu, Þórir Guðmundur er kominn með 30 stig, 73-59.  
 
– Ísland tekur leikhlé, 68-59. 
 
– Loksins kom íslenskt stig, Þórir Guðmundur keyrir á körfuna, setur skotið niður og fær víti að auki sem klikkar, 68-59.  
 
– Enn minnka Svíar muninn, 66-59 sem stendur og 6 mínútur eftir af leiknum. 

– Hérna fyrir neðan er video af fyrstu körfu Íslands í fjórða leikhluta, mjög vel framkvæmt hjá drengjunum. 
 
 
 
 
 
– Svíar skora snögg fjögur stig og Borce tekur leikhlé fyrir Ísland, Þetta var of auðvelt fyrir Svíana 66-56. 
 
– Fyrsta karfa íslands í fjórða leikhluta er virkilega glæsileg, þrjár sendingar inní teig sem Þórir Guðmundur skilar svo ofaní viðstöðulaust, 66-52 
 
 
 
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson
 
Þriðji leikhluti 
 
– Ísland leiðir með 12 stigum þegar flautað er til loka þriðja leikhluta, 64-52.  
 
– Þórir Guðmunduri setur þrist þegar tvær mínútur eru eftir af þriðja, 60-50.  Jón Arnór átti gott áhlaup á körfuna og neglir boltanum út á Þórir sem var galopinn 
 
– Forskot Íslands er komið í 10 stig, 55-45.  Svíar hafa ekki nýtt þau skot sem þeir ná og Ísland hefur nýtt tækifærin sín vel. 
 
– Svæðisvörn Íslands sem Finnar fóru illa með í gær hefur virkað ágætlega hingað til en nú virðist sem Svíar hafi fundið veikan blett.  Ísland hefur fengið þrjár villur dæmdar á sig í einni og sömu sókninni og Sigurkarl hefur sest aftur á bekkinn þar sem hann átti tvær af þessum villum
 
– Íslenska liðið heldur þessum mun, Sigurkarl hefur komið stekrur inn í vörnina fyrir Íslenska liðið og þeim tekst að gera Svíunum erfiitt fyrir.  51-42 
 
– Strákarnir byrja seinni hálfleikinn af krafti og hafa náð 9 stiga forskoti aftur, 47-38. 
 
– Byrjunarlið Íslands í seinni hálfleik er Þórir, Sveinbjörn, Eyjólfur, Sigurkarl Róbert og Brynjar Karl 
 
 
 
 
Stigahæstur í liði Íslands í hálfleik er Þórir Guðmundur Þorbjarnarson með 11 stig og 4 fráköst en næstu menn eru Ingvi Þór  Guðmundsson með 8 stig og Jón Arnór Sverrisson með 6 stig.  
 
Jón Arnór Sverrisson 
 
Annar leikhluti 
 
– Kerfið klikkar, Svíar komast í boltan og bruna fram en skotið þeirra geigar líka.  42-38 í hálfleik. 
 
– Íslenska liðið er með boltan á hliðarlínunni og 6,7 sekúndur eftir af fyrri hálfleik, Borce tekur leikhlé til að fara yfir málin. Ísland leiðir  42-38 
 
– Íslenska liðið er að keyra hratt upp og fá fyrir vikið oft auðveldar körfur í það sem gæti kallast annari bylgju.  Leikurinn er mjög hraður og það virðist henta Íslenska liðinu ágætlega. 
 
– Svíar svara fyrir sig og hafa minnkað forskotið niður í 4 stig, 33-29. 
 
– Jón Arnor keyrir á vörn Svía, snýr laglega og setur skotið niður.  Ingvi Þór var ekki lengi að bæta við úr hraðaupphlaupi og forskot Íslands komið í 9 stig, 31-22.  Svíar taka annað leikhlé 
 
– Adam Eiður kemur inná og skorar sín fyrstu stig í dag eftir laglega sendingu frá Eyjólfi, 27-22 
 
– Svíar taka leikhlé 
 
– Aftur stelur Ísland boltanum, í þetta skiptið var það Ingvi Þór en hann klárar hraðaupphlaupið með sóma, 25-20 
 
– Eyjólfur Ásberg skorar fyrsta stig íslands í öðrum leikhluta af vítalínunni og Jón Arnór bætir tveimur við stuttu seinna þegar Íslenska liðið stelur boltanum og brunar fram, 23-20 
 
– Það voru svíar sem brutu ísinn og leiða með einu stigi, 19-20 
 
– Hvorugu liðinu hefur tekist að skora á fyrstu tveimur mínútum annars leikhluta
 
 
 Jörundur Snær Hjartarson 
 
Fyrsti leikhluti 
 
– hvorugu liðinu tekst að bæta við stigum áður en flautan gellur og fyrsta leikhluta er lokið, 19-18 . 
 
– íslenska liðið er a keyra á körfuna þessa stundina og eru oftar en ekki sendir á línuna í kjölfarið.  Ísland leiðir með einu stigi, 19-18.  
 
– Svíar eru komnir yfir aftur í stöðunni 15-16.  Þeir setja þrist strax eftir leikhlé 
 
 - Leikur Íslenska liðsins er ekki uppá sitt besta, Borce, þjálfari liðsins tekur leikhlé í stöðunni 15-13 
 
– Svíar refsa fyrir mistök og setja snögg fjögur stig, 13-10. 
 
– Árni Elmar leikur sama leik, 12-6 og íslenska liðið er á góðu róli 
 
– 9-4 Þórir Guðmundur setur þrist í næstu sókn við mikinn fögnuð  úr stúkunni. 
 
– Ísland er komið yfir í stöðunni 4-6, en það var Þórir Guðmundur sem var fyrstur fram og lagði boltan laglega upp og undir eins og menn segja á ensku
 
– Stuðningsmenn og konur íslands taka vel undir í stúkunni í dag en hérna fyrir neðan má sjá U16 lið kvenna syngja með þjóðsöngnum úr stúkunni 
 
Íslenska U16 lið kvenna styður vel við vini sína í karlaliðinu úr stúkunni  
 
– Svíar byrja þetta af krafti og setja fyrstu fjögur stigin.  Það var hins vegar Sveinbjörn sem skoraði fyrstu stig Íslands í leiknum.  
 
– Byrjunarlið Íslands er : Þórir Guðmundur, Árni Elmar, Sveinbjörn, Brynjar Karl og Jörundur Snær 
 
 Fyrir leik 
 
– Þórir Guðmundur Þorbjarnarson er sem stendur efstur á lista í sínum flokki í fjölda stiga per leik, með 22,7 stig.  Brynjar Karl Ævarsson er í þriðja sæti yfir stoðsendingahæstu menn, með 4 stoðsendingar á leik.  
 
– Nú styttist í þjóðsöngva, en þeir eru leiknir fjórir í einu fyrir öll fjögur liðin sem keppa á völlunum tveimur sem liggja samhliða hérna í Solnahallen.  Núna eru það lið Íslands, Svíþjóðar, Eistland og Danmörk. 
 
– Einhver ruglingur virðist hafa verið á tölfræði liðsins hingað til í mótinu en Adam Eiður Ásgeirsson hefur verið skráður sem Ingvi Karl Jónsson á skýrslu, vonandi verður þetta leiðrétt fyrir seinasta leik liðsins á morgun 
 
– Liðið stillti upp í liðsmynd fyrir leik sem má sjá hérna efst í fréttinni 
 
– Hérna fyrir neðan er staðan í riðli Íslands u16 karla.  
 
Fréttir
- Auglýsing -