spot_img
HomeFréttirU18 kvk: Stórt tap gegn Ísrael

U18 kvk: Stórt tap gegn Ísrael

U18 ára kvennalandslið Íslands mátti sætta sig við 76-52 ósigur gegn Ísrael í gær í sínum fyrsta leik í Evrópukeppni B-deildar. Sara Rún Hinriksdóttir var atkvæðamest í liði Íslands með 16 stig, 10 fráköst og 3 stolna bolta.
 
 
Af vef KKÍ um leikinn:
 
Fyrsti leikhluti fór í að átta sig á leiknum og andstæðingum okka, Ísraelum, og endaði hann 21-12 fyrir Ísrael. Í öðrum leikhluta voru íslensku stelpurnar óheppnar og munurinn jókst jafnt og þétt og staðan í hálfleik var 39-20.
 
Stelpurnar mættu þó tvíelfdar til leiks í seinni hálfleik og voru ekki á þeim buxunum að leyfa Ísraelunum að ná meiri forystu. Íslenska liðið náði jafnt og þétt að minnka muninn og unnum við þriðja leikhluta með fjórum stigum 14-18. Íslensku stelpurnar sýndu hörku baráttu og þvinguðu andstæðingana í léleg skot og til að tapa boltanum hvað eftir annað.
 
Í fjórða leikhluta gáfu andstæðingarnir í og veittu baráttuglöðum Íslendingum mótspyrnu og endaði leikurinn því með 22 stiga tapi 76-52.
 
Íslenska liðið var með 32 tapaða bolta og eru þær staðráðnar í að gera betur í næsta leik!
 
Stigaskor:
Sara Rún 16 stig(10 fráköst,3 stolnir boltar)
Sandra Lind 9 stig (8 fráköst, 3 stoðsendingar)
Þóra Kristín 9 stig (6 fráköst)
Elsa Rún 6 stig(4 fráköst)
Guðlaug Björt 6 stig
Sólrún Inga 3 stig
Margrét Ósk 3 stig
 
Þjálfarateymið var sammála um að velja Þóru Kristínu mann leiksins enda barðist hún eins og ljón á báðum endum vallarins og fékk hún fána Ísraelska körfuknattleikssambandsins í verðlaun – áritaðan af íslenska liðinu.
 
Í dag er frídagur og verður hann nýttur í undirbúning fyrir næsta leik sem er á laugardaginn kl. 20:15 (17:15 á Íslandi) á móti Englandi.
 
www.kki.is
  
Mynd/ Jón Björn: Sara Rún í leik með U18 liðinu á Norðurlandamótinu 2014.
Fréttir
- Auglýsing -