spot_img
HomeFréttirKKÍ: Öruggt gegn Eistum í fyrsta leik U18 kk

KKÍ: Öruggt gegn Eistum í fyrsta leik U18 kk

U18 ára landslið karla lék í dag fyrsta leik sinn í B deild Evrópukeppninnar í Sofia í Búlgaríu. Strákarnir eru í D riðli og voru Eistar þeirra fyrsti andstæðingur. Okkar menn voru í sjálfu sér ekki að leika illa í fyrri hálfleik, þar sem varnarleikurinn var heilt yfir sterkur en sóknarmegin var vöntun á betri skotnýtingu.
 
Þessi lið mættust á NM í lok maí og höfðu okkar menn þar góðan sigur rétt eins og í dag en lokatölur urðu 72-45. 
 
Byrjunarlið íslenska liðsins var skipað þeim Kára Jónssyni, Jóni Axel Guðmundssyni, Kristni Pálssyni, Hjálmari Stefánssyni og Brynjari Magnúsi Friðrikssyni. Staðan að fyrsta leikhluta loknum var 14-9 og 10 leikmenn höfðu þegar komið við sögu.
 
Forystan var enn fimm stig í hálfleik (29-24) og hittnin í raun vandi íslenska liðsins. Strákarnir höfðu sem dæmi tekið átta 3ja stiga skot án þess að nokkuð færi niður en á meðan vörnin var að halda var forystan svosem alltaf til staðar.
 
Síðari hálfleikurinn var mun kraftmeiri. Íslenska liðið byrjaði með látum og náði 15-0 spretti um miðbik 3ja leikhluta og læstu leiknum í rauninni með þeim sprett. Allir leikmenn liðsins komu við sögu í síðari hálfleik og tíu af tólf leikmönnum komust á blað í stigaskori.
 
Jón Axel Guðmundsson var atkvæðamestur í íslenska liðinu með 21 stig og tók að auki 3 fráköst, gaf 5 stoðsendingar og stal 5 boltum. Kári Jónsson kom honum næstur með 12 stig og Magnús Már Traustason gerði 10 stig.
 
 
Tölfræðimolar dagsins:
– Íslenska liðið gerði 50 stig í teignum í dag gegn 14 stigum Eista
– Hraðupphlaupsstigin voru 21 gegn 8 stigum Eista
– Íslenski bekkurinn skilaði 28 stigum á meðan bekkurinn hjá Eistum skilaði 19
– Ellefu af tólf leikmönnum Íslands léku 10 mínútur eða meira og sá tólfti lék 8:57 mín
 
Á morgun leikur lið Íslands gegn Þjóðverjum sem virðast hreinlega sterkasta liðið á mótinu ef miðað er við úrslit úr æfingaleikjum þeirra undanfarið gegn A þjóðum og það verður því verðugt verkefni fyrir drengina. Þjóðverjar leiða með 18 stigum í fyrri hálfleik gegn Ísrael þegar þetta er skrifað en þessi tvö lið eru úr efstu styrkleikaflokkum í riðlinum. 
Leikurinn á morgun hefst klukkan 18:15 að staðartíma (klukkan 15:15 heima).
 
Hópurinn ber fyrir kveðju heim.
 
Svipmyndir úr leiknum verða birtar hér á Karfan.is á morgun.
 
 
Mynd:  Jón Axel fór mikinn gegn Eistum. (Snorri Örn)
Fréttir
- Auglýsing -