Leik Tindastóls og KR sem átti að fara fram í Subway deild karla á morgun fimmtudag hefur verið frestað vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar.
Leikurinn sá annar sem fara átti fram á morgun en hefur verið frestað í deildinni, þar sem í gær var sagt frá því að leik Grindavíkur og Vals hefði verið frestað.
Leikjunum hefur ekki verið fundinn nýr leiktími.