Nú þegar landsleikjaprógrammið er komið að enda þá fara æfingamótin að hefjast og á þriðjudag mun Ljósanæturmótið hefjast í Reykjanesbæ. Fjögur lið eru skráð til leiks í karlaflokki en það eru lið Keflavíkur, Grindavíkur, Njarðvíkur og Hauka. Þá eru þrjú lið skráð til leiks í kvennaflokki en það eru Keflavík, Njarðvík og Grindavík.
Dagsskráin er sem hér segir;
Þriðjudagur 2. september
TM-Höllin
– Kl. 18.00 / Keflavík – Grindavík (Karlar)
– Kl. 20.00 / Njarðvík – Haukar (Karlar)
Ljónagryfjan
– Kl. 18.00 / Keflavík – Njarðvík (Konur)
Miðvikudagur 3. september
Ljónagryfjan
– kl. 18.00 / Njarðvík – Grindavík (Konur)
Fimtudagur 4. september
TM-Höllin
– Kl. 18.00 / Keflavík – Grindavík (Konur)
Ljónagryfjan
– Kl. 18.00 / Tapliðin frá þriðjudeginum (Karlar)
– Kl. 20.00 / Sigurliðin frá þriðjudeginum (Karlar)
Körfuboltaáhugafólk er hvatt til að líta við en frítt er inn á alla leiki