Jón Axel Guðmundsson og Fortitudo Bologna lögðu Napoli í kvöld í ítölsku úrvalsdeildinni, 86-89.
Eftir leikinn er Bologna í 14. sæti deildarinnar með fimm sigra og tíu töp það sem af er tímabili.
Á 14 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Jón Axel tveimur stigum og frákasti.
Næsti leikur Jóns og Bologna í deildinni er þann 23. janúar gegn Tortona.