spot_img
HomeFréttirÓlafur Björn og Florida Southern lutu í lægra haldi gegn Nova Southeastern

Ólafur Björn og Florida Southern lutu í lægra haldi gegn Nova Southeastern

Ólafur Björn Gunnlaugsson og Florida Southern Mocs máttu þola tíu stiga tap í gær fyrir Nova Southeastern í bandaríska háskólaboltanum, 83-73.

Það sem af er tímabili hafa Mocs unnið sex leiki og tapað ellefu.

Á 10 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Ólafur þremur stigum og frákasti.

Næsti leikur Ólafs og Mocs er komandi miðvikudag 19. janúar gegn Tampa University.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -