Martin Hermannsson og Valencia lögðu í kvöld Ratiopharm Ulm í deildarkeppni EuroCup, 70-76.
Eftir leikinn er Valencia í þriðja sæti B hluta deildarinnar með sex sigra og þrjú töp það sem af er tímabili.
Á 23 mínútum spiluðum skilaði Martin 8 stigum, frákasti og 5 stoðsendingum.
Næsti leikur Valencia í keppninni er þann 19. janúar gegn Promitheas Patras.