spot_img
HomeFréttirJack Perri þjálfari LIU í viðtali

Jack Perri þjálfari LIU í viðtali

 Þjálfari LIU Brooklyn liðsins, Jack Perri var í viðtali á heimasíðu skólans nú í dag og þar fer hann yfir komandi vetur og við hverju megi búast við í grófum dráttum.  Jack talar vel um okkar menn, þá Martin Hermannsson og Elvar Már Friðriksson og segir þá mjög vinnusama.  ”Þeir eru öðruvísi að því leyti að þeir voru að spila í atvinnumanna deild og eru því að nokkru leyti tilbúnari en aðrir.” sagði Jack Perri meðal annars.  LIU byrjar tímabilið á morgun gegn ekki ómerkari andstæðingum en St Johns háskólanum sem voru á níunda áratug nokkuð reglulegir í lokaúrslitum (64 liða)  NCAA keppninar.  Viðtalið er hægt að skoða hér að neðan.    
 
Leikurinn á morgun verður sýndur á ESPN og hægt er að fara á heimasíðu ESPN.com og versla aðgang og horfa á herlegheitin.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -