Martin Hermannsson og Valencia lögðu Unicaja Malaga í dag í ACB deildinni á Spáni, 82-87.
Eftir leikinn er Valencia í 4.-5. sæti deildarinnar með níu sigra og sex töp það sem af er tímabili.
Á rúmum 18 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin 16 stigum, frákasti, 3 stoðsendingum og stolnum bolta, en hann var bæði stiga og framlagshæstur í liði Valencia í dag.
Næsti leikur Martins og Valencia í deildinni er þann 16. janúar gegn Barcelona.